Mánuður í jól og næstu ár frá síðasta bloggi
Ég er búin að hugsa oft til síðunnar undanfarið ár en ég hef ekkert gert í mínum málum. Ég er nú þyngri en nokkru sinni, þori eiginlega ekki að segja hversu þung og hef því ákveðið að setja allar tölur inn í janúar ef ég næ að halda mig við efnið þangað til. Finnst ekkert spennandi að opinbera það ef ég næ ekki tökum á þessu. Ég ætlaði að byrja aftur í janúar og þori varla að segja “jæja nú er ég byrjuð” ég verð bara að reyna að gera mitt besta og sjá hvað setur.
Ég er búin að vera í allskonar rannsóknum allt árið en ég er sennilega með einhverja gigt en það kemur vonandi í ljós fyrr en síðar. Ég er búin að vera að þjást af síþreytu og verkjum og hef átt nóg með amstur hversdagsins. Það er samt alltaf jákvætt að borða hollt og hreyfa sig og ætla ég nú að leggja mig fram við hvort tveggja. Reyna að hætta að afsaka mig og harka af mér í gegnum erfiðasta hjallinn.
Ég er núna með bullandi flensu ofan í allt saman svo það verður ekki lagt í hann með hvelli en fyrsta markmiðið verður að drekka tvo lítra af vatni á dag og ekki borða nammi eða drekka gos. Ef og þegar ég hef einhverja orku þá skelli ég mér á fjölþjálfann minn.
Nóg í bili. Ég vona að það verði ekki ár í næsta póst.
Engin ummæli enn.
Skildu eftir svar
« Fyrri |
