Pásan er formlega búin
Jæja, eins og Hrönn benti svo réttilega á, þá er pásan mín búin, ég fékk aðeins lengri tíma til að klára ritgerðina mína og fór hún til prófdómara í gær. Ég svaf nánast ekkert frá föstudagsmorgni til þriðjudags (eða rétt um 10 tíma) svo ég ætla að byrja átakið mitt á hvíld
ég ætla smá saman að taka mataræðið aftur í gegn og kaupa mér svo kort í wold class um helgina eða á mánudaginn. Ég er rosalega spennt fyrir árinu og get ekki beðið eftir þvi að komast í gott form.
Ég óska ykkur innilega gleðilegs nýs árs. Ég mun halda áfram að leyfa ykkur að fylgjast með og á morgun koma nýjar tölur og kannski frekari útlistun á því hvað ég ætla mér að gera næstu dagana í mínum málum. Nú ætla ég aftur á móti að leggja frá mér tölvuna og fara að lesa bókina: Ég er Nojoud 10 ára – fráskilin
Hafið það gott.
