Big Maggy

Átaksblogg

Pása

Hæhæ, ég er búin að vera lítið hérna inni undanfarið. Ég er núna staðráðin í að ná að klára MA ritgerðina mína og einbeita mér að því 100% fram að næsta ári. Ég ætla þess vegna að taka mér pásu bæði í aðhaldi og bloggi fram til 6. janúar þegar ég hef lokið við að skila og verja ritgerðina mína.

Hlakka til að byrja aftur og vona að þið kíkið á mig aftur þá.

10/12/2009 Höfundur: bigmaggy | Átakið | | 7 Ummæli

Nammi nammi nammi

Jæja, ég tók ákvörðun um að fá mér nammi um helgina og borðaði helling í gær og fyrradag. Ég ætla ekki að fá mér í dag eða restina af vikunni. Ég tel ólíklegt að ég hafi náð 2l. markmiði mínu í gær en náði því örugglega á föstudaginn. Ég hreyfði mig heldur ekkert í gær. Ég á örugglega ekki eftir að hreyfa mig í dag heldur, ég er búin að vera hóstandi í nótt og vaknaði svo með hrikalegan hausverk. Ég ætla að reyna að taka því frekar rólega í dag og reyna að læra aðeins.

Ég var mjög þakklát þegar ég steig á viktina í morgun og hún sýndi aðeins 2-300 gramma þyngdaraukningu. Ég ætla að láta það duga og fara aftur niður næstu daga.

Þar til næst xoxo

29/11/2009 Höfundur: bigmaggy | Átakið | | 1 ummæli

Kæra dagbók!

Markmiðum gærdagsins náði ég svona nokkurn vegin. Ég fékk mér ekki ávöxt en annað stóðst. Ég fékk mér reyndar eitt glas af eplasafa og þá má örugglega telja það sem ávöxt :)

Ég var auðvitað mjög ánægð með töluna á viktinni í dag og hún er tvímælalaust hvatning til að gera áfram vel. Ég er ekki búin að taka afstöðu til þess hvort ég fái mér eitthvað nammi eða gos um helgina, ég ætla bara að sjá til.

Ég ætla að taka smá tiltektar- og þrifbrennslu í dag :) og reyna svo að hreyfa mig eitthvað á morgunn.

Markmið dagsins er að borða einn ávöxt, smá grænmeti, drekka 2l. vatni og taka til og þrífa á efri hæðinni, í það minnsta :)

Meira á morgunn…

Góða helgi!

Fegurð fynst í öllum stærðum

27/11/2009 Höfundur: bigmaggy | Átakið | | 4 Ummæli

Smátt og smátt

Markmið gærdagsins í höfn, borðaði engin sætindi og drakk allavega 2l. af vatni :)

Ég ætla að halda áfram með þetta sama markmið í dag og bæta við að borða einn skammt af grænmeti og einn ávöxt.

Dagurinn í dag fer að mestu í skutl og síðan ætla ég að skella mér á Hellisbúann í kvöld með fríðum flokki félagsráðgjafanema :) :)

26/11/2009 Höfundur: bigmaggy | Átakið | | No Comments Yet

Undur og stórmerki

Ég stóð mig nokkuð vel í að vera sykurlaus í gær. Ég fékk mér nokkrar piparkökur en ekkert gos eða nammi. Ég drakk líklega ekki alveg 2 l. af vatni en ég var nokkuð nálægt því.

Undur og stórmerki gerðust í gær, ég skellti mér út að skokka með Katrínu. Þar sem ég var búin að vera mjög slöpp og með mikinn svima þá var ég varla að þora að fara en ákvað þó að drífa mig og fara bara stutt. Við skokkuðum í 13 mín. og löbbuðum svo bara rest. Ég hélt það myndi líða yfir mig á leiðinni en ég komst á leiðarenda án þess. Við ætlum að fara aftur á fimmtudaginn, vonandi verð ég orðin skárri af svimanum þá og get vonandi farið eitthvað lengra. Þetta er nú samt bara ágætis byrjun, maður er allavega komin í gang.

Í dag ætla ég áfram að einbeita mér að því að sleppa gosi og nammi og ég ætla að ná að innbyrða 2 l . af vatni.

Ég vona að þið eigið frábæran dag :)

25/11/2009 Höfundur: bigmaggy | Átakið | | 1 ummæli

Sykurlaus ;)

Í dag ætla ég að vera alveg sykurlaus og drekka 2 l. af vatni. Þetta er fyrsta skrefið af mörgum í að komast aftur í gang.

Ég fór á viktina í morgun og var bara nokkuð sátt þegar ég las 78,0 nú er bara að halda sig við efnið og sjá þessa tölu fara neðar og neðar.

Það er aðeins öðruvísi að vera að blogga svona undir nafni en að gera það nafnlaust, ef ég væri nafnlaus hefði ég eflaust ekki hikað við að segja ykkur hvað amar að mér þessa dagana. Ég skrifaði þó færslu um daginn á mjög persónulegum nótum og hluti af mér sá eftir því en hluti af mér fannst það í góðu. Ég er nefnilega dáldið þannig að ég vil ekki sýna á mér veikan blett en það er nú samt líklega þannig að engin getur verið alltaf “cool”.

Ég ætla því að deila því með ykkur að ég er búin að vera hjá lækni síðustu vikur af því að ég var svo framtakslaus, þreytt, svaf illa, var kvíðin, átti erfitt með að einbeita mér o.fl. ég fór í blóðprufu sem leiddi í ljós að ég er með of lítið B12 sem getur skýrt þessi einkenni. Ég fékk samt líka lyf til að hjálpa mér með kvíðann og svefninn þar sem ég var búin að vera að hreyfa mig og borða hollt en það var ekki að duga. Ég er búin að vera að taka þessar töflur núna í eina og hálfa viku og er búin að vera með slatta af aukaverkunum, s.s. ógleði, þreytu, svima og hroll. Læknirinn sagði að aukaverkanirnar væru mestar fyrstu vikuna en ættu svo að minnka og vonandi hverfa. Ég tek líka inn B12 (gerði það reyndar líka áður) og svo fer ég aftur í mælingu eftir um 2 mánuði. Ég hef þannig ekki alveg verið upp á mitt besta þar sem aukaverkanirnar bættust við allt hitt en ég vona að ég fari nú að hætta að finna fyrir þeim og geti tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið.

Jæja þá er ég búin að létta þessu af mér. Ég vona að þið sem lesið bloggið mitt haldið áfram að kíkja við þó það komi kannski tímabil sem ég blogga ekki. Því þið getið sannarlega trúað því að ég er enganvegin hætt og ég mun ná takmarki mínu.

24/11/2009 Höfundur: bigmaggy | Átakið | | 6 Ummæli

Aftur í gang eða hvað?

Jæja, er ekki orðið löngu tímabært að ég láti heyra í mér hérna aftur, já og fari að standa við stóru orðin og gera eitthvað af viti í þessu átaki?

Ég er ekki búin að hreyfa mig í rúmar tvær vikur núna og ekki heldur búin að passa mataræðið. Ég þyngdist strax helgina eftir að ég byrjaði að sukka en svo hef ég staðið í stað og farið örlítið niður. Þetta er ég alveg súper ánægð með, það munar sko alveg um hvert kíló sem maður þarf eða þarf ekki að losa sig við :) Ég stefni á að byrja að hreyfa mig aftur í vikunni og smá saman að laga mataræðið aftur. Ég ætla að vera dugleg að skrifa færslur hér inn í vikunni og láta ykkur vita hvernig mér gengur að standa við þetta núna.

23/11/2009 Höfundur: bigmaggy | Átakið | | 3 Ummæli

Aftur í gang

.Jæja ég er búin að þyngjast núna um 1,3 kíló, ég veit reyndar að hluti af því er vatn og ætla ekki að hafa áhyggjur af því. Ég er búin að vera í algjöru rugli núna í eina viku bæði er ég ekki búin að passa mataræðið og ég er ekki búin að hreyfi mig neitt síðan á föstudag. Nú er bara að halda áfram og gera sitt besta einn dag í einu. Ég veit að ég mun ná takmarki mínu!

Hlaupafélaginn minn er sem sagt aftur í útlöndum en nú verður þetta bara viku sukk en ekki þriggja vikna eins og síðast þegar hún fór. Ég get, ég skal, ég ætla. Maður hefur sjálfsagt bara gott af því að taka svona sukk viku, ég finn allavega strax hvað hlaupin eru mér nauðsynleg og hvað mér líður miklu betur líkamlega og andlega á réttu mataræði. Ég varð þreytt á að labba upp stigann hjá mér í gær, ussussuss.

Jæja það er sem sagt komið nóg af sukki og ég ætla að borða hollt í dag og fara út í göngutúr það er frábært veður úti og göngutúrar eru svo góðir.

Læt ykkur vita hvernig mér gengur að komast aftur í gang ;)

13/11/2009 Höfundur: bigmaggy | Átakið | | 9 Ummæli

Á mjög persónulegum nótum!

Hum, það er svo miklu auðveldara að blogga þegar vel gengur heldur en þegar það gengur illa. Það er sem sagt ekki búið að ganga alveg nógu vel.

Ég get allavega sagt að ég er búin að átta mig á því af hverju mér gengur stundum illa, hjá mér tengist það tilfinningalegri líðan.

Mér hefur ekki gengið nægilega vel að skrifa ritgerðina mína og sé ekki fram á að ná að klára tímanlega til að ná að útskrifast næsta vor og það hvílir mjög þungt á mér. Ég var mjög útkeyrð eftir síðasta vetur og einhverra hluta vegna hef ég ekki náð mér almennilega á strik eftir það. Það er sama hvað ég sjálf reyni eða aðrir segja, ég er bara ekki búin að ná mér og veit hreinlega ekki afhverju og ég veit ekki hvernig ég á að fara að því. Eina stundina er ég mjög ákveðin í að klára ritgerðina en þá næstu fyllist ég vonleysi og kvíða. Ég vona bara að ég geti annað hvort fundið styrk til að halda áfram með ritgerðina og “rumpað henni af” eða sæst við þá hugmynd að hvíla hana, hvíla mig og ná mér almennilega. En ég á erfitt með að taka ákvörðun um það síðarnefnda og sættast við hana. Mér líður eins og mér hafi mistekist.

 

09/11/2009 Höfundur: bigmaggy | Átakið | | 9 Ummæli

Að þekkja ekki andstæðinginn

Ég léttist nú ekki mikið þessa viku eins og ég átti nú von á og náði ekki alveg markmiði mínu en var þó nokkuð nærri. Ég er þó mjög sátt að ná því sem ég náði og er mjög sátt við árangurinn hingað til. Ég veit betur næst og mun þá ekki fara í eitthvað sukk korter í markmiðstölu :) Ég borðaði auðvitað allt of lítið í gær og fyrradag til að reyna við markmiðið og var orðin orkulaus í morgun. Ég nærði mig því vel áðan til að hafa orku í hlaupið í hádeginu.

Nú byrjar næsta 6 vikna lota, samkvæmt markmiðinu mínu hér ætla ég að missa 1 kg. á viku en er svona að gæla við það að missa jafnvel 7,3 eða 7,7 ég ætla að melta það í dag. Það myndi gera sirka 1.3 kg. á viku.  Eftir mánuð er WLC keppnin búin að mig langar að ná slatta af mér fyrir það. Ég veit að það eru einhverjir með betri tölur en ég og keppnismanneskjan ég verð að fara að spíta í lófana til að eiga einhvern séns þar. Mér finnst reyndar ókostur við þá keppni að maður veit ekki hvernig hinir keppendurnir eru að standa sig eða hvar í röðinni maður er, til að keppni virki almennilega á mig þarf ég að vita hvernig andstæðingarnir eru að standa sig. .

Ég hef dæmi um þetta alveg frá því ég var 11 ára, ég var að keppa í bakskriðsundi í fyrsta sinn, keppendur voru fleiri en brautirnar svo það var keppt í riðlum. Ég var lang fyrst í mínum riðli og var svona ekkert voðalega mikið að flýta mér í lokin af því ég var svo langt á undan hinum. Ég hélt ég myndi svo keppa á móti þeim sem myndu vera fyrstir í hinum riðlinum, síðan kom á daginn að það var bara tíminn sem gilti og ég lenti í öðru sæti. Ég var frekar svekt yfir þessu og man þetta enn þann dag í dag 20 árum seinna :)

Hafið það gott um helgina :)

 

06/11/2009 Höfundur: bigmaggy | Átakið | | 2 Ummæli